.....byrjar hann enn og aftur!

Skoðanafíkillinn

04.11.2009 09:23:44 / bandito

Eilítið snöggt öppdeit.......

Heil og sæl börnin góð. Já ég veit að ég er alveg hræðilegur bloggari eitthvað eftir að ég kom í útlandið þar sem útlenskan er töluð. Ég ætla að reyna laga það fljótlega og fara skipuleggja mig aðeins betur. Ég var víst búinn að lofa vídjóbloggi sem mun gerast um leið og ég kemst yfir linsufóbíuna. ;)

En snúum okkur að öppdeitinu. Ég sit hérna í skólanum núna, nýbúinn að fara yfir námsefni í annað skipti fyrir próf sem er á eftir eða klukkan 14.30, og drekk kaffi til að vakna betur. Ég reif mig á lappir klukkan 7 í morgun til að koma hingað og læra, sem er í fyrsta skipti síðan ég kom hingað eða allavega í fyrsta skipti á virkum degi. Ég er búinn með einn áfanga núna og það er sænska 1. Það gekk bara vel í prófi og ég hendi inn hérna þegar ég er búinn að fá útúr því. Núna á ég eina viku eftir af sænsku 2 kúrsinum og ef ég get samið við kennarann um próftíma þá tek ég sennilega sænsku 3 kúrsinn líka. Já og núna er ég að klára fyrsta tölvukúrsinn, prófið í dag og verkefnaskil vonandi á föstudaginn.

Ég er farinn að hlakka til að koma heim yfir jólin. Farinn að sakna ykkar allra meira og meira. Ætla að reyna hitta sem allra flesta á meðan ég er heima en þið verðið bara að afsaka ef ég næ ekki að hitta einhvern því ég ætla nú að eyða dágóðum tíma með stúlkunni minni.

Meira verður það ekki að sinni þar sem ég ætla að fara á eilítinn fund með kennara til að fara yfir það sem virðist ekki ætla að setjast almennilega í höfuðið á mér.

Þetta er Gunni Gunz Bandito að segja, "Hej då alla mina kompisar, vi ses" 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.08.2009 09:36:29 / bandito

Hej fra Sverige.....

Heil og sæl börnin góð.

Þetta verður nú stutt og laggott í dag þar sem ég er að skrifa þetta á meðan ég á að vera hlusta á skólahjúkkuna. :)

Smá öppdeit á stöðu mála hjá mér. Ég er semsagt kominn til Svíþjóðar og búinn að upplifa næstum 6 daga í landi Svíakonungs. Allt er nú nokkuð góðu lagi hingað til. Hef verið á fullu í allskyns kynningardóti hér og þar um skólasvæðið sem og um bæinn. Svo tókst mér að næla mér í einhverja pest þannig að ég er aðeins "under the weather" þannig að ég er að éta pillur til að ná mér sem hraðast af því.

Svo að þið séuð nú með allar upplýsingar hjá mér þá er ég kominn með sænskt númer og þið getið náð í mig í +46 0704 265855, en endilega sendið mér bara frekar e-mail á gunni@svalbo-city.com frekar. Nýja heimilisfangið mitt er Timmervägen 7A, 541 64 Skövde, Sverige svona þegar þið farið að senda mér íslenskt nammi, áfengi og harðfisk svo ég fái ekki of mikla heimþrá. :)

Fljótlega fer ég í það að gera vídjóblogg og þá getiði séð íbúðina mína, þegar ég er búinn að ganga frá öllu. :)

Þangiað til næst þá er þetta Gunni "GunnZ" Bandito að segja hej då.

» 9 hafa sagt sína skoðun

05.08.2009 11:46:50 / bandito

Nöldur, níðingur og nenn'ekki......

Heil og sæl börnin góð. Nú er ég sko búinn að klúðra því allhressilega, næstum 4 mánuðir síðan ég skrifaði eitthvað hérna síðast. Það er ekki laust við að maður hafi nú líka verið að bardúsa aðeins á þeim tíma. En ég tækla það næst hvað er búið að gerast, því núna langar mig aðeins að nöldra um svolítið sem ég geri öllu jafnan ekki.

Af einhverjum ástæðum fékk Helgi félagi mig til að tauta og raula við sig um pólitík og "ástandið" um daginn. Þetta er eitthvað sem ég geri ekki öllu jafnan því þetta er svo hrikalega niðurdrepandi umræðuefni og ég hreinlega nenni ekki að vera fýlupúki alla daga. :) En ég greip svo sjálfan mig glóðvolgan við að lesa hitt og þetta um ESB og IceSlave. Þó geri ég mér grein fyrir því að það er miklu miklu miklu miklu meiri upplýsingar þarna úti sem ég get lesið til að geta talið mig nokkuð fróðan um málið, en ég sit nú samt á skoðun minni um málið hingað til. :klikk:
Ég álpaðist semsagt inn á einhverja síðu þar sem ég las mér aðeins til um þetta blessaða IceSave mál. Mér fannst besti punkturinn koma þar fram að innistæðueigendur í bönkunum eru að sjálfsögðu búnir að borga ríkistjórnum viðkomandi ríkja, semsagt Hollandi og Bretlandi, skatta af þessum peningum. Afhverju ættum við þá að borga þetta?
Síðan datt ég inná greinina sem Joly konan skrifaði og fannst mjög svo áhugavert að samkvæmt evrópskum og íslenskum lögum er upphæð innistæðureikninga aðeins 20.000 evrur (ca. 3.6 milj. króna) en Hollendingar og Bretar ákváðu það einhliða að upphæðin ætti að vera 50.000 - 100.000 og jafnvel hærri. Maður spyr sig, hvað er svona gruggugt í þeirra pokahorni að þeir þurfa að fela það með því að níðast á smáþjóð norður í ballarhafi? Við erum ekki ennþá komin í ESB og tvær stórar Evrópuþjóðir eru strax byrjaðar að ráðskast með okkur.
Rosalega oft er talað um að ef við förum inn í ESB að þá getum við haft áhrif á mál innan Evrópu því við verðum komin með "kosningarétt" en fólk virðist ekki gera sér grein fyrir því að það eru minni áhrif en Borgaraflokkurinn hefur á okkar eigin Alþingi.
Ég sé líka að núverandi ríkisstjórn fékk þetta mál í hendurnar og fékk það með öllum þessum leiðindar skuldbindingum. Mér dettur einna helst að líkja þessu við að maður hafi verið að taka við leiguhúsnæði og síðustu leigjendur hefðu passað sig á því að labba útum allt á grútskítugum skónum áður en þeir fóru út. En mér finnst fullmikið eins og Samfylkingin sé svo ESB blind að hún vill samþykkja þennan yfirgangshátt á okkur svo það stöðvi ekki inngöngu okkar. Ef þetta er forsmekkurinn að aðild þá vil ég ekki sjá þetta bandalag.
Þá að lokum er um að gera að skoða aðeins meira útfrá þessu. Enn er töluvert um ESB andstæðinga innan þings hjá Bretum. Þeir eyða um 12 milljörðum punda í ESB á ári, þar af fá þeir 7 miljarða aftur til baka. Bretar eru því að borga hinum evrópsku þjóðunum í sambandinu 5 miljarða fyrir aðild sína. Það tala rosalega margir um það að ESB fari um koll verði Tyrkir samþykktir í bandalagið. Ég bara get ekki séð almennilega hagnaðinn á því að ganga í þetta blessaða bandalag. Fyrir mér sýnist þetta verða alltof mikill kostnaður og fórn. Ef það er svona mikið atriði að vera í einhverskonar bandalagi útaf varnarmálum þá er alveg hægt, að mínu mati, að tala aftur við Kana, Kanada eða Noreg.

Jæja ég er búinn að koma þessu frá mér í bili. Vonandi lendi ég ekki aftur í einhverju leiðindar tíkarbrasi þá er við póli er kennd.

Þetta er því Gunni "GunnZ" Bandito að segja, alls ekki lesa þetta drasl allt saman, það er svooooo leiðinlegt. :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2009 16:38:57 / bandito

Vá endalaust pirraður útí .........

Heil og sæl börnin góð. Að vanda hef ég trassað að blogga hérna nægilega reglulega. Þó verður þetta blogg með aðeins öðruvísi sniði þar sem ég þarf virkilega að koma frá mér pirring útí það sem er í gangi bæði hér á landi sem og í Svíþjóð.

Í dag var semsagt kveðinn upp dómur í máli RIAA gegn Pirate Bay í hálfgerðum héraðsdómi í Stockholm. Þar segja miðlar að forsprakksmenn Pirate Bay vefsíðunnar hafi verið dæmdir til að greiða 30 milljónir sænskra króna, sem er um 450 milljónir íslenskar krónur, í skaðabætur til RIAA. Þetta er náttúrulega himinhá upphæð og eitthvað sem þessir menn hafa sagt að þeir geti engan veginn borgað, enda er Pirate Bay síðan rekinn ýmist með tapi eða á sléttu því er þeir segja. Gaman er samt að benda á að upphaflega heimtaði RIAA 120 milljónir sænksra króna, eða 1.8 miljarð íslenskra króna, en stór hluti þeirrar kæru var hent út eftir ca. 1,5 dag. Að sjálfsögðu tóku SMÁÍS félagið þetta og blés upp eins og það væri búið að vinna hér alveg stórsigur, líkt og þeir gerðu þegar þeir unnu málið sitt í héraðsdómi ef sigur má kalla. Það sem þeir segja engum frá er að þessi mál eru svo langt frá því að vera búin. Það á enn eftir að áfrýja isTorrent málinu til hæstaréttar og fá úrskurð þar, einnig eiga Pirate Bay eftir að áfrýja sínu máli til hæstaréttar í Svíþjóð.
Mikið er talað um þessi mál í Svíþjóð sem er ein netvæddasta þjóð í heiminum. En nú nýlega er búið að samþykkja lög þar í landi sem gerir samtökum kleyft að lögsækja einstaklinga fyrir brot á höfundarréttarlögum með því að deila efni á netinu. Þetta hefur hleypt af stað umræðum um spillingu innan sænsku ríkisstjórnarinnar og vilja menn meina að RIAA hafi einfaldlega keypt atkvæði til að koma þessum lögum á. Sænska ríkisstjórnin er einmitt einnig gagnrýnd fyrir að hafa hleypt Hollywood mönnum inní landið og leyft þeim að túlka lögin eftir eigin hendi, ef það hefur ekki verið hægt þá hreinlega komið öðrum lögum á laggirnar.
Prívat og persónulega finnst mér þetta stórhættuleg ákvörðun, ef hægt er að lögsækja einstaklinga verður ekkert mál fyrir þessi samtök að hreinlega leggja vissa einstaklinga í einelti og jafnvel búið til sönnunargögn með því að ráða "tölvuþrjóta" (hakkera) til að koma þessum sönnunargögnum fyrir. Það að þessi samtök séu að starfa bara í hag vissra aðila er að mínu mati svo mikil firra. Í USA var einstaklingur lögsóttur fyrir að dreifa efni á netinu ólöglega. Eftir að stórum hluta ákæruþátta hafði verið neitað bauðst viðkomandi til að bæta höfundi fyrir þessi atriði sem eftir stóðu og bauðst til að borga 1000 dollara, sem er ca. eins og 75 eintök af albúmi, en því var þverneitað þar sem sóst var eftir 120.000 dollara í bætur (ca. 9030 eintök).
Það koma alltaf svakaleg mótmæli frá þessum aðilum þegar ný tækni kemur upp, samanber VHS tækni og svo DVD. Síðan eru bíómiðaverð hækkuð og þeir kenna svo internetinu um lélega aðsókn í bíóhús og lélegri DVD sölu. Sjálfur er ég helpirraður á þessu liði. Ég hef ekkert á móti bíóhúsum landsins eða fólkinu sem að þeim snúa en SMÁÍS og þess háttar samtök mega bara éta það sem úti frýs fyrir mér. Við erum að greiða öllum þessum "listamönnum" stefgjöld af tómum DVD diskum, CD diskum og hörðum diskum. Það er nú þannig gott fólk að ef þú kaupir þér harðan disk til að setja inn gögn eins og ljósmyndirnar ÞÍNAR þá ertu að greiða stefgjöld til þess. En nú hætti ég áður en ég spring úr pirringi.

Þetta er því Gunni "GunnZ" Bandito að segja : F U fégráðuga pakk. :evil:


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.03.2009 18:13:52 / bandito

Yndislega klikkaður......

Heil og sæl börnin góð. Já ég veit að nú er langt um liðið síðan síðast og hefur karlinn verið alltof lélegur við þessi skrif sín. Hehehe alltaf byrjar þetta á sömu vitleysunni, afsaka sig í bak og fyrir. En byrjum þessa vitleysu.

Já sama gamla rútínan er ennþá í gildi. Skóli, vinna, verkefni og sprikl. Enn eina önnina hefur mér tekist að trassa allt sem trassast getur og því alveg með verkefnahrúguna á bakinu að vanda. Það á nú samt ekki að vorkenna svona vitleysingum eins og mér því við bjóðum sjálfum okkur uppá þessa vitleysu. Ég ætla bara að setjast núna niður og páera mig í gegnum þetta allt, ég hef það alveg í mér að rúlla þessu upp. Þá verða bara þrifin heima fyrir að trassast í staðin. :) Ég græt það ekki lengi. :)

Ég er búinn að vera alveg ótrúlega hress bara síðan síðast, svona að undanskyldum einum ömurlegum vinnudegi, og ég ætla að halda því áfram þar sem fólk þekkir mig varla öðruvísi. Enda ef maður pælir nú almennilega í þvi þá er alger óþarfi að vera eitthvað pirraður eða í fúlu skapi. :) Svo er maður alltaf að bardúsa með skemmtilegu fólki sem sér nú til þess að ég er ánægður. Ekki má gleyma handboltanum sem er bara snilld, skil ekki afhverju ég hætti á sínum tíma.

Meira nenni ég ekki að hafa þetta í bili. Þetta er því Gunni "Gunnz" Bandito að segja : "ekki lifa í fortíðinni því henni geturu ekki breytt, njótið frekar nútímans og framtíðarinnar því þú hefur áhrif á hana, já og brostu"


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.03.2009 18:29:02 / bandito

Og hann dansaði næstum því of mikið.......

Heil og sæl lömbin mín. Já þá er komið að því að það bætist enn ein vitleysan úr mér hérna inná þetta sem er kallað blogg á ensku, en ég fíla orðið skraf meira á íslensku. :) Vindum okkur í þetta.

Síðast var merkisdagur því ég var jú að verða 26 ára og ótrúlegt en satt þá stoppaði ekki allt né endaði, þannig að lífið heldur áfram. Ég tók mig til og eldaði svínahamborgarahrygg sem á átti í frystinum síðan um jól. Bauð svo nokkrum tilraunadýrum í mat og þetta heppnaðist allt þrælvel. :) Þó segja þeir að ég þurfi ekki að breyta til um framtíðaráhorf, þeir eru ekki vissir um að ég myndi meika það sem kokkur. :) En það var svo djammað og skemmt sér framá morgun. Þakka öllum því góður kveðjurnar og dansana og gjafirnar. :)

En núna síðastliðin laugardag var svo bissí dagur hjá mér. Dagurinn byrjaði á 2 tíma íþrótta-útvarpsþætti með Orra frænda, sem var klárlega gaman. Þarna fékk ég að gera það sem ég geri mest, tala! Hehehe já ég veit vel að ég tala mikið og þetta hentaði þvi mjög vel. :) Eftir þetta var svo að gera sig kláran fyrir árhátíð FSHA, redda því sem eftir var. Tók nett fyrirpartý hjá Kalla beyglu þar sem ég hellti í mig á rosalegum hraða því áfengi sem ég var með, 6-7 bjórar, nokkur skot. Árshátíðin var svo alveg þrælmögnuð. Ég var klárlega orðinn fulli gaurinn en held að ég hafi nokkuð vel þrætt línuna góðu sem maður vill helst ekki fara yfir. Þrátt fyrir það var ég nú tæklaður þarna seinni partinn og hellt í mig gamla góða H2O, það virkaði svona þrælvel því ég var í gírnum alla nóttina. :) Pleisið var náttúrulega smekkfullt af frábæru fólki og þetta var klárlega alveg frábært frá A til Þ. :D Og því meðfylgjandi alveg bönts af myndum af mér í misskrautlegu ástandi. Svo og hið margfræga vídjó kumpána þar sem kauði var víst "narrator" í vísó hlutanum. Klárlega sjónvarpsstjarna að fæðast. :D hehehehehe

Meira verður það ekki að sinni, þetta er því Gunni "G" Bandito að segja "Holy shit hvað það er gaman að vera lifandi." 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.02.2009 15:17:47 / bandito

Í dag er merkisdagur.......

Heil og sæl börnin góð. Núna er ég engan veginn að standa mig í skrifum þar sem það er nú kominn rúmur mánuður síðan ég álpaðist hingað inn til að skrifa. Þessi færsla verður engu að síður bara stutt og laggó.   

Í dag er merkisdagur því ég ku víst vera árinu eldri í dag. Djammaði hressilega í gær sem var alveg geggjað gaman og hef ekki skemmt mér svona vel lengi lengi lengi. Í kvöld ætlar karlinn svo að elda, með smá aðstoð frá Inga frænda, og nokkrir af strákunum verða tilraunadýr í að bragða á þessari afurð. :D Stefnan síðan sett á eitt partý og svo trall í sjallanum fram á nótt.

Þakka kærlega fyrir allar kveðjurnar og pakkana sem ég mun fá *hint*. Þetta er því Gunni "G" Bandito að segja : "Ég er bara einfaldlega frábærastur og hógværastur" :klikk:


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 15:36:43 / bandito

Ring around the rosie, pocket full of.........

Hey y'all ding dongs. Jebbs, enn eitt "meistaraverkið". Hverjum hefði dottið í hug að ég myndi álpast til að skrifa meira á þessu ári en áður.

Í dag er ekki alveg besti dagurinn, karlinn liggur fyrir heima alveg nett steiktur á því. Herbergið er búið að vera snúast í hringi síðan hann vaknaði klukkan hálf átta í morgun. Er búinn að standa nokkrum sinnum upp og í hvert skipti er eins einhver setji þess helv... hringekju í 4 gír og bensínið í botn. Ég ákvað því að renna í gegnum leigusamninginn minn og það er hvergi tekið fram að það eigi eitthvað að snúast hérna, ég vona að ég verði ekki rukkaður aukalega fyrir það. Djöfuls snilld væri ef það væri í alvöru að snúast því þá væri svo auðvelt að taka til, maður færi bara útí hornin og tína upp allt ruslið á einum stað. Jæja við sjáum hvort "the man of steel" rífi sig ekki uppúr þessum leiðindum a.s.a.p.

Síðastliðin helgi var bara svona líka helvíti fín. Ég sá til þess að ég yrði ekki alveg gjörsamlega ónýtur á laugardeginum með rólegri drykkju og heimferð um hálf tvö. Vaknaði eldhress svo daginn eftir um 9 leytið, fór svo uppí fjall, tosaði í reipi og renndi mér á snjóþoturass með elegans. :) Svo hellti ég í mig um kvöldið og hafði skutlaði mér niður í bæ þar sem ég hafði mikið gaman. Svo er borg óttans næstu helgi til að ná í auto'inn minn. :)

En að lokum kemur snöggt skóla-öppdeit. Ég fór og lét skoða áfangana sem ég ætlaði að taka í Skövde og búið að samþykkja að ég taki allt og eins og málin líta út núna þá verð ég þarna úti allt næsta skólaár. Jebbs, þið sem eruð ekki búin að fá nóg af mér í bili hafið þá hálft ár til þess og þið hin sem eruð alveg búinn að fá nóg, well tough luck þið sitjið uppi með mig í hálft ár í viðbót. Verð að viðurkenna að þetta er bæði ótrúlega spennandi tilhugsun og pínu scary líka. Ég veit ekkert í hvað ég er að fara og það er bæði spennandi og scary as hell. :) En stundum er bara ekki hægt að sitja á bakkanum með tærnar í vatninu og síga hægt og rólega útí, stundum þarf maður bara að standa upp, bakka frá vatninu, taka sér svo bara gott tilhlaup og láta vaða útí djúpa endann. Safe and easy is exactly that, safe and easy. We sometimes just need some excitement. Safe and easy can come later.

Þetta er því Gunni "G" Bandito að segja : "whoops, there it is". 8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.01.2009 09:23:01 / bandito

Öppdeit......

Heil og sæl börnin góð. Já það ótrúlega gerðist, blogg strax aftur, ég hreinlega veit ekki hvað er um að ské hjá manni. Eða jú ég veit alveg hvað það er, núna þarf að koma einhverju frá sér.

Já það er eitthvað issue hjá mér og karma í dag. Ég semsagt skellti mér í körfu í gærkveldi útá Þelamörk og fór svo að fá mér bjór með Svenna, sem er víst nýji "óvenjulegi" djammfélaginn. Jú jú það var fínt, fékk 3 bjóra og hafði það fínt og spjallaði. Ég sofnaði eitthvað um 2 leytið í nótt og ætlaði mér nú að sofa til rétt rúmlega 10 og skella mér svo í bolta klukkan 12. Alheimurinn hefur aðrar hugmyndir greinilega því ég var vakinn rétt rúmlega 8 til að mæta í vinnuna og verð þar til klukkan 7 í kvöld. Jibbí!! :$ Þetta þýðir að ég verð alveg einstaklega ferskur í kvöld á trúbbakvöldinu á Kaffinu. Held að maður verði ekki lengi úti í kvöld.

Meira púst var það ekki í bili. Þetta er því Gunni "G" Bandito að segja : Waaaa waaaa, grenj gren, cry cry, nöldur og ógeð. :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2009 15:41:55 / bandito

Allt verður einu sinni fyrst.......

Heil og sæl börnin góð. Jújú það er rétt, ég er að blogga með stuttu millibili. En það er nú þannig að ef bloggið er stutt þá er alltaf eitthvað sem maður gleymir.

Fyrst og fremst ber að nefna karma. :) Það er ekki bara "Earl" sem fylgir þessu og sér merki þess. ;) Ég var rétt búinn að monta mig af því að vera fara í þriggja daga helgi þegar síminn hringdi og ég var beðinn um að mæta til vinnu klukkan 8 í fyrramálið (föstudag). Andsk....!!! Þar fór þriggja daga helgin mín!!! GRRRR og fótboltatíminn!!!! Þannig að ég tók mig til og gerði eitthvað gott og hjálpaði vini mínum þegar ég kom heim. 20 mínútum síðar, eitt stykki sms, "Þarft ekki mæta nema á venjulegum tíma á morgun." Þriggja daga helgin kominn í gang aftur og fótboltinn á morgun STILL ON!! See people, do good and good will come to you. :)

Næst á dagskrá, SCRUBS!!! Já ég er mikið í upphrópunarmerkjunum í dag, er eitthvað ægilega ofvirkur, búinn að segja svo lítið undanfarna daga. :D En já Scrubs er byrjað aftur í sýningu í Ameríkunni og eru fyrstu tvær vikurnar búnar að koma með 2 þætti hvora viku. Það er útaf fyrir sig alger snilld, tvöfaldur skammtur í hverri viku. Leyfið mér að segja þetta með orðum Barney úr How I Met Your Mother "Legend..... wait for it ........ ARY!" Og ekki er verra að þetta eru búnir að vera mjög kúl þættir. Ef þú hefur ekki séð Scrubs þá er sko vel kominn tími fyrir þig, já ég er að tala um þig aulinn þinn, að skella sér beint í þetta og jafnvel eyða allri helginni í að horfa á fyrstu 7 seríurnar. :) Svo er náttúrulega sjónvarps- og tónlistarsjúklingurinn í mér vel sáttur við að American Idol er byrjað aftur. Er búinn að glápa á svona fyrstu þættina og lúkkar ágætlega so far, nema náttlega veruleikafirrta fólkið og þá sem vantar nokkrar blaðsíður í. Þetta verður vonandi gott season. :)

Það er réttast að enda þetta á kvarta yfir lélegu líkamlegu formi mínu. Birkir frændi álpaðist til að plata mig í nokkrar armbeygjur í gær, axlirnar á mér eru ekki góðar núna og ég á leiðinni í körfu í kvöld. 8| Það verður að gera eitthvað í þessum andsk..., það er ekki hægt að vera svona alltaf ef maður slysast til að gera eitthvað líkamlegt. :) Það verður skrautlegt að sjá hvernig maður kemur undan vori :D miðað við 4-5 daga af sprikli á viku og Háskóladjömmum. 8)

Þetta er því Gunni "G" Bandito að segja : hafið augun opin fyrir klikkuðum, stórum, síbrosandi gauk sem er að reyna koma sér í betra form. :haha:
lélegt form,


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.01.2009 01:46:52 / bandito

Jæja þá hefst það allt aftur.......

Heil og sæl börnin mín góðu. Þá hefst hið eiginlega fyrsta blogg þessa nýja árs 2009. Ég var jú búinn að skrifa eilítið hér á fyrsta degi ársins en það var bara nýárskveðja þannig að ég tel það nú ekki með. Þetta er því það fyrsta.

Þá eru liðnir 11 dagar af þessu nýju ári og fullt tungl með meiru. Á morgun, 12. jan, hefst svo skólinn að nýju og já allt að hefjast aftur. Sjálfur er ég farinn að hreyfa mig miklu meira með þeirri von um að geta snúið sólarhringnum við og vaknað aftur á skikkanlegum tímum. Svo er líka að fara hella sér í hópverkefnið aftur, forrita og vesenast. Svo eru skólamál fyrir næsta ár, það er að koma upp núna að ég þurfi kannski að bara 1 önn úti þar sem það eru ekki nema 3 áfangar á seinni önninni sem ég get tekið. En það kemur allt í ljós von bráðar.

En ef við víkjum okkur aftur að nýju ári og með nýju ári koma áramótaheit. Ég vil endilega heyra ykkar, en mitt er jú einmitt að reyna minnka tölvuhangsið heima og reyna gera eitthvað fleira/meira í staðinn. Með þrautsegju og smá hjálp frá vinum mínum ;) þá held ég að þetta gangi alveg upp. :) Þannig er hægt að segja að þetta sé áskorun til ykkar líka.

Fleira verður það ekki að sinni, þannig að þetta er Gunni "G" Bandito að segja : "farið varlega með að snúa sólarhringnum öfugt því hann er algert bitch að snúa til baka".

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.01.2009 15:28:32 / bandito

Nýtt ár gengið í garð........

Heil og sæl börnin góð. Þá er nú nýtt ár gengið í garð með tilheyrandi pompi og pragti, sprenginum og drykkju.

Mig langar að þakka ykkur öllum fyrir frábært ár sem er liðið, allar klikkuðu og skemmtilegu stundirnar og alla bölvuðu vitleysuna. :) Megi svo nýtt ár koma með enn fleiri og enn skemmtilegri stundir.

Þetta er þá Gunni "G" Bandito að óska öllum gleðilegs nýs árs og hlakkar til að sjá ykkur á nýju ári. ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 14:05:06 / bandito

Jólin, jóóólin aalllstaðar......

Heil og sæl jólabörnin góð. Það er nú búið að líða fulllangt núna síðan ég skrifaði einhverja stafi hér síðast. Ég hef verið að reyna koma mér í það en aldrei þessu vant hefur vantað orðin. En nú hlýt ég að geta komið einhverju niður.

Já prófin búin, jólafríið gekk í garð strax á eftir. Slökun og rólegheit alveg þangað til að þurfti að kaupa jólagjafir. Það hafðist þó að kaupa handa nokkrum útvöldum. Fátækir námsmenn geta víst ekki keypt jólagjafir handa öllum sem þeir vilja og verða að velja úr. :) En víkjum aftur að skólanum. Var semsagt búinn 12. des og byrja aftur 12. jan. Frá og með deginum í dag hef ég náð öllum þeim prófum sem ég tók og er það alveg brilliant jólagjöf. Sit hér og brosi alveg út að eyrum.

Þá er það jólakveðjan. Á www.svalbo-city.com getið þið séð jólakveðjuna mína og jólasveinamynd af yðar einlægum. En fyrir ykkur sem eruð að deyja úr leti og nennið ekki að ýta á tengilinn þá óska ég ykkur gleðilegra jóla og hafið það sem allra best yfir hátíðarnar. Ég ætla nú að skella svo inn hérna áramótakveðju síðar þannig að þið fáið ekki allan skammtinn núna.

Þetta er því Gunni "G" Bandito Jólasveinn að segja, ho ho hoooo merry christmas.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2008 23:10:55 / bandito

Tíðin á fullu.......

Heil og sæl börnin góð. Já það er orðin tæpur mánuður síðan síðast sem ég álpaðist hingað inn og dottaði eitthvað niður. Þetta er næstum ófyrirgefanlegt, bara næstum. En 3 af þessum vikum hafa verið mjög svo þungar og mikið að gera.

Já ég er semsagt nýbúinn að vera í prófum, sem tóku upp síðustu 2 vikur. Í vikunni áður en þau byrjuðu var ein vika þar sem nóg var um verkefnaskil. Þetta safnaðist einhvernveginn allt saman og lítill var tíminn sem maður hafði fyrir eitthvað annað. En nú er öldin önnur, prófin búin og ég ætla að þykjast hafa náð öllu þangað til annað kemur í ljós. Próflokadjamm var alveg geggjað gaman, þó svo að ég hafi verið OF timbraður á laugardeginum. Það er alltaf eitthvað sem vegur svo miklu meira á móti þynnkuveiki. :)

Núna hefst svo hin vitleysan, jólaundirbúningurinn. Það þýðir þrif, gjafir og margt fleira. Ég er nú langt kominn með þrifin en ekkert kominn á leið með gjafirnar. Þessi jól verða með skringilegra mótinu, margt hefur breyst í samfélaginu og maður veit aldrei hvað gerist næst. Held að þemað hjá manni þetta árið verði rosalega minimalískt. Það verður rosalega gaman að sjá alla þá sem hafa verið að heiman og koma nú heim yfir hátíðarnar en leiðinlegt að sjá á eftir hinum sem eiga víst heima annarsstaðar.

Eitthvað er maður fámáll núna, sennilega búinn að bölva öllu áður sem hægt var og ekki var mikið um hasar í prófatíðinni. Vonandi verður það miklu meira síðar. :D

Þetta er því Gunni "G" Bandito að segja : Be on the lookout, there's something awesome going down soon. 8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 17:48:15 / bandito

Á þessum tímum......

Heil og sæll öllsömu enn og enn og enn og enn og enn og aftur. Virðist svosem að það sé mest "repeat customers" sem kíkja hingað inn, allavega miðað við komment fjöldann. :) Alls ekki að það sé neinn slæmur hópur, reyndar alveg samansafn af snillingum og rugludöllum eins og mér.

Fyrirsögnin var nú erfið fyrir mig núna, vissi ekkert hvað ég ætti að skrifa. Þannig að ég hafði það bara nægilega generalt. :D En já hvað hefur verið í gangi. Það er nú ýmislegt. Tók til dæmis einn hræðilegan dag á fimmtudaginn. Var í því að læra á fullu og var að til klukkan 5 á föstudagsmorgun. Það var eitt massaverkefni sem þurfti að skila inn og hafði ég ekki efni á því að sleppa því. Nema hvað að ég vaknaði aftur klukkan hálf 11 til að klára og skila. Þið getið rétt ýmindað ykkur hversu æðisgengið hress ég var og alveg einstaklega skemmtilegur... NOT. Föstudagurinn var ekki neitt ægilega spennó og ekki hjálpaði að ég var símalaus þar sem ég hafði misst hann í bílnum sem Helgi Hrafn var á. Já sem minnir mig á hitt skemmtilega sem ég gerði á fimmtudaginn. Ég fór semsagt á körfuboltaæfingu, svosem ekki frétt til næsta bæjar ef Dolli hefði ekki skellt bílhurðinni á hendinna á mér. Þetta var mjög skringilegt. Ég var frekar heppinn þar sem gúmmílistinn í hurðinni tók mesta höggið og ég var mjög rólegur, bað Dolla bara um að opna hurðina aftur þar sem hendin á mér væri klemmd. Svo ég teipaði bara vísifingur og löngutöng saman, spilaði svo körfubolta í rúman klukkutíma. Já svona er þetta. Svo var vaknað í vinnuna á laugardagsmorgun, unnið til 1 og svo hangið á kaffihúsum til tæplega sex, að læra. Ég fékk svo símann minn á laugaradagskvöldinu um hálf 9 og viti menn, 17 missed calls og 6 skilaboð. Alveg merkilegt hvað fólk þarf alltaf að ná mikið á mér þegar ég er símalaus.

En yfir í aðra sálma, vítt og dreift engu að síður. Ég er semsagt orðinn frændi aftur. Heiða litla systir mín er búinn að eignast lítinn 9 marka strák. Hann fæddist nú rétt rúman mánuð áður en hann átti að koma en líkt og mamma sín hefur hann verið eitthvað óþolinmóður. :) Síðast þegar ég frétti þá heilsast stubb og mömmu bara vel. Svo fékk ég mjög svo undarleg sms í símann minn meðan hann var ekki í mínum höndum. Það voru semsagt skilaboð frá leyndum aðdáanda sem kallaði sig gluggagjæjir. Þessi skilaboð komu af ja.is og voru að kvarta yfir rimlagardínunum mínum, að þau skuli koma í veg fyrir að það sjáist inn. Eins og margir vita þá er ég einn af forvitnustu mönnum í heimi og þessi manneskja nýtti sér það sko allhressilega. En hún kom nú upp um sig sjálf. Fólk sem er í USA verður að hafa eitthvað að gera greinilega. Takk fyrir að pína mig Hófy, veit allaveg að það er einhver að hugsa til mín. :D En ég ætla að biðja ykkur um að vera ekki að drepa mig úr forvitni næsta mánuðinn, það er að koma prófatíð og ég þarf að hafa einbeitinguna á náminu. :)

Meira verður það ekki að sinni og Gunni "GunnZ" Bandito kveður með einni af uppáhalds tilvitnum sínum : "Make something idiotproof and someone will find a way to make better idiots"


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Könnun
Ert þú að stressast í kreppunni?



Heimsóknir
Í dag:  15  Alls: 28646